Icelandic
Birt: 2024-05-28 11:44:06 CEST
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum


Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 760 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 10,0% vöxtum, sem samsvarar 0,29% álagi á 3M Reibor og 480 milljónum í sex mánaða víxilinn á 10,14% vöxtum sem samsvarar 0,37% álagi á 6M Reibor eða samtals 1.240 milljónum. Á gjalddaga, þann 3. júní næstkomandi, eru víxlar að nafnvirði 1.720 milljónir króna.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum gríðarlega þakklát fyrir traustið sem fjárfestar halda áfram að sýna félaginu.”
Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 3. júní 2024.

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is