Icelandic
Birt: 2026-02-25 13:06:07 CET
SEL I hs. - Ársreikningur

Ársreikningur SEL I hs. 2025

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SEL I hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í nóvember árið 2024.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2025 að fjárhæð 6 USD samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í árslok 2025 námu 40.742.717 USD og hrein eign sjóðsins nam 110 USD samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2025, efnahag hans 31. desember 2025 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2025, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. https://www.stefnir.is/kaupholl Nánari upplýsingar veitir Per Matts Henje, per.henje@stefnir.is

Viðhengi


SEL I hs. arsreikningur 31.12.2025.pdf