Árshlutareikningur SÍL hs. 30.6.2023 Árshlutareikningur SÍL hs. 30.6.2023 Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021. - Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 35 þús. kr. á tímabilinu.
- Eignir sjóðsins í lok júní 2023 námu 6.506 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er ályktun endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins, efnahagi hans 30. júní 2023 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2023, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar veita Anna Kristjánsdóttir, anna.kristjansdottir@stefnir.is
|