Icelandic
Birt: 2026-04-27 15:30:11 CEST
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Ársreikningur Reykjavíkurborgar árið 2025

Ársreikningur Reykjavíkurborgar árið 2025 var lagður fyrir borgarráð í dag 27. apríl og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn þann 28. apríl næstkomandi.

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 8 milljarða

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 8,0 ma.kr. sem var um 2,7 ma.kr. lægri niðurstaða en árið 2024. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 54,1 ma.kr. sem var um 8,9 ma.kr. lægra en árið 2024. EBITDA í hlutfalli af tekjum var 18,4% og lækkar um 4,3%-stig milli ára. Lakari niðurstöðu miðað við árið 2024 má einkum rekja til gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar sem nam 9,9 ma.kr. Rekstrarniðurstaða fyrir skatta, matsbreytingar og áhrif hlutdeildarfélaga var engu að síður jákvæð um 2,5 ma.kr. Matsbreyting fjárfestingaeigna Félagsbústaða hafði jákvæð áhrif á niðurstöðu rekstrar og nam 8,3 ma.kr.

Skuldaviðmið A- og B-hluta án Orkuveitu Reykjavíkur var 106% í árslok 2025 en var 104% árið 2024. Þá er jafnvægisviðmið jákvætt um 6,0 ma.kr. Ákvæði í reglugerð 502/2012 um að undanskilja skuli veitu- og orkufyrirtæki við útreikning á jafnvægis- og skuldaviðmiði gildir til ársloka 2030.

Heildareignir A- og B-hluta samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi 31. desember 2025 námu 1.038,1 ma.kr. og heildarskuldir ásamt skuldbindingum námu 560,5 ma.kr. Eigið fé nam 477,5 ma.kr. en þar af nam hlutdeild minnihluta 18,8 ma.kr. Eiginfjárhlutfall A- og B-hluta í árslok var 46,0%. Eigið fé A- og B-hluta hækkaði um 23,5 ma.kr. milli ára sem má rekja til jákvæðrar rekstarniðurstöðu, endurmats á framleiðslu- og dreifikerfi Orkuveitu Reykjavíkur og hækkunar lóðamats sem skatttekjur reiknast af hjá A-hluta.

Veltufé frá rekstri nam 42,9 ma.kr. eða 14,6% í hlutfalli af tekjum. Fjárfestingar (brúttó) námu 64 ma.kr. eða 21,8% í hlutfalli af tekjum. Ráðstafað var 6 ma.kr. meira til fjárfestinga í samstæðu borgarinnar árið 2025 en árið 2024. Lántaka og ný stofnframlög námu 45,7 ma.kr. á árinu og afborganir lána og leiguskulda námu 33,7 ma.kr. Handbært fé nam 30,8 ma.kr. í lok árs.

Lífeyrisskuldbindingar vega þungt í rekstri A-hluta

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 5,3 ma.kr. á árinu 2025 sem var 5,7 ma.kr. undir áætlaðri niðurstöðu. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindingar vegna R-deildar Brúar Lífeyrissjóðs nam 9,9 ma.kr. á árinu og vó þyngst í fráviki rekstrar. Grunnreksturinn, þ.e. rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var jákvæð um 7,3 ma.kr. Rekstur málaflokka A-hluta var í jafnvægi í samanburði við fjárhagsáætlanir á árinu.

Veltufé frá rekstri A-hluta styrkist á milli ára

Veltufé frá rekstri nam 14,3 ma.kr. og var 6,9% í hlutfalli af tekjum og hækkaði um 0,6%-stig á milli ára. Skuldaviðmið A-hluta í árslok 2025 var 80%. Kennitölur fjármálastefnu sýna allar jákvæða þróun ef undan eru skilin áhrif lífeyrisskuldbindinga á jafnvægi í rekstri.

Tekjur A-hluta námu 206,6 ma.kr. og hækkuðu um 12,1 ma.kr. eða 6,2%. Staðgreiðsla útsvars hækkaði um 9,3 ma.kr. borið saman við árið 2024 eða um 7%. Tekjur af sölu byggingarréttar sem færast á greiðslugrunni námu 3,4 ma.kr. á árinu. Fjölmargir uppbyggingasamningar voru gerðir á árinu 2025 sem hafa ekki komið til tekna ennþá og eru þeir metnir á allt að 2,8 ma. kr. að frátöldum gatnagerðargjöldum sem áætluð eru um 3,2 ma.kr. Munu þessir samningar koma til tekna á árinu 2026 eða síðar eftir framvindu uppbyggingar.

Laun og annar rekstrarkostnaður án lífeyrisskuldbindinga nam 189,5 ma.kr. og hækkaði um 7% á milli ára. Launaútgjöld hækkuðu um 8,4 ma.kr. eða um 8,1% en nýir kjarasamningar hafa hér nokkur áhrif. Mikla hækkun lífeyrisskuldbindinga má einkum rekja til þess að vísitala lífeyrisskuldbindinga sem mælir launaþróun á opinberum markaði, og skylt er að nýta við tryggingafræðilegt mat áfallinna skuldbindinga, hækkaði um 11,7% á árinu 2025. Á móti kemur að eignir sjóðsins samkvæmt tryggingafræðilegu mati standa í stað á milli ára öfugt við árið 2024, þar sem raunávöxtun þeirra er undir 3,5% viðmiði skv. reglugerð um skyldutryggingu lífeyrisréttinda.

Í rekstrarreikningi ársins eru færðar til gjalda aukalega 450 m.kr. vegna samnings Reykjavíkurborgar og íslenska ríkisins frá árinu 2004 um þátttöku í kostnaði við nauðsynlega uppbyggingu bílastæða og bílastæðahúsa innan lóða LHS. Ýmis mál vegna uppbyggingar á Landsspítalareit eru ófrágengin á milli NLSH ohf. og borgarinnar sem gætu komið til tekna á móti gjaldfærslunni.

Fjármagnsgjöld (nettó) námu 2,1 ma.kr. og voru 1,3 ma.kr. lægri en áætlað var. Arður af eignarhlutum nam 7,0 ma.kr. en vaxtagjöld og verðbætur námu 10,2 ma.kr.

Heildareignir A-hluta samkvæmt efnahagsreikningi 31. desember 2025 námu samtals 308,7 ma.kr. og heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 221,7 ma.kr. Eigið fé nam 87,0 ma.kr. Eiginfjárhlutfall var 28%.

Fjárfest í skólum og öðrum innviðum

Fjárfestingar ársins námu 21,4 ma.kr. og jukust um 700 m.kr. Þær beindust að uppbyggingu, viðhaldi og endurnýjun skóla og leikskóla og innviðum gatna. Lántaka ársins nam 13,2 ma.kr. og var 3,0 ma.kr. lægri en árið 2024. Afborganir langtímalána og leiguskulda námu 9,7 ma.kr. á árinu og voru 3,6 ma.kr. lægri en árið áður. Dregið var á lánssamning hjá Þróunarbanka Evrópuráðsins (CEB) á árinu sem nemur 2,8 ma.kr. Í árslok var samsvarandi fjárhæð á bankareikningi í evrum. Stofnframlög á grundvelli laga um almennar íbúðir námu 1,5 ma.kr. og hlutafé greitt í Þjóðarhöll ehf. og Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. nam 1,5 ma.kr.

Stöðugildi A-hluta voru að meðaltali 8.675 á árinu 2025 og fjölgaði um 0,8% frá árinu 2024. Samanlagður fjöldi stöðugilda A-hluta og B-hluta samkvæmt ábyrgðarhluta Reykjavíkurborgar 2025 var 9.849. Íbúar Reykjavíkurbogar voru skv. Þjóðskrá Íslands 147.042 þann 1. desember 2025 og fjölgaði um 0,8% frá sama tíma árið 2024.

Áherslur og ytra rekstrarumhverfi

Rekstrarumhverfi Reykjavíkurborgar hefur á síðustu mánuðum tekið talsverðum breytingum í kjölfar þess að þensla í þjóðarbúinu hefur minnkað. Verðbólga hefur reynst þrálát og mældist 5,2% í upphafi árs 2026. Peningastefnan er aðhaldssöm og hefur verið hert á ný. Hagvöxtur var hóflegur árið 2025, um 1,3%. Á vinnumarkaði hefur dregið úr spennu; störfum hefur hætt að fjölga og atvinnuleysi aukist, með vísbendingum um áframhaldandi veikingu atvinnuhorfa. Þessi þróun hefur bein áhrif á tekjustofna Reykjavíkurborgar. Hægari vöxtur efnahagsumsvifa og aukin óvissa á vinnumarkaði dregur úr vexti útsvarstekna, á sama tíma og kostnaðarþrýstingur vegna launa og verðlags er áfram til staðar.

Áherslur Reykjavíkurborgar á aðgerðir á húsnæðismarkaði voru áberandi á síðasta ári. Hefur borgin haldið áfram að að styðja við óhagnaðardrifin félög til uppbyggingar á hagkvæmu leiguhúsnæði og hafinn er undirbúningur að því að hraða uppbyggingu á nýju landi Halla í Úlfarsárdal. Í mars var undirritað samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um rekstur úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda og tók ríkið alfarið yfir ábyrgð á þjónustunni frá 1. janúar 2026. Innleiddar voru skipulagsbreytingar á sviði eigna- og viðhaldsstjórnunar og skipulags- og byggingaferla til að bæta skilvirkni og þjónustu við ytri og innri hagaðila. Á velferðarsviði var ráðist í umtalsverðar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri málaflokks fatlaðs fólks til að stuðlað að aukinni skilvirkni. Á skóla- og frístundasviði var nýtt fjármögnunar- og rekstrarlíkan leikskóla, Snorri, tekið í notkun. Í samstæðu borgarinnar gætti einkum áhrifa af rekstrarfalli Norðuráls sem hafði neikvæð áhrif á afkomu tengdra félaga, þar á meðal Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafna.

                                                                                                                   ***

Með 13. gr. laga nr. 25/2020 og 2. gr. laga nr. 22/2021 hefur Alþingi vikið til hliðar fjármálareglum sveitarfélaga skv. ákvæði 64. gr. sveitarstjórnarlaga til loka árs 2025. Var það gert til að liðka fyrir möguleikum sveitarfélaga til viðspyrnu og sóknar í stað samdráttaraðgerða vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Undanskilja skal veitu- og orkufyrirtæki við útreikning á jafnvægis- og skuldaviðmiði til ársloka 2030 samanber reglugerð 1091/2025.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu Reykjavíkurborgar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf., Jafnlaunastofu sf. og Þjóðarleikvangs ehf.



Reykjavík, 27. apríl 2026.

Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs

halldora.karadottir@reykjavik.is

Arsreikningur-Reykjavikurborgar-2025.pdf
Skyrsla-fjarmala--og-ahttustyringarsvis-me-arsreikningi-2025.pdf