Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 23. mars 2023Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA230928. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.660 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 8,80-9,20%. Tilboðum að fjárhæð 1.400 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,98% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 30. mars 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita: Matei Manolescu, Fossar fjárfestingabanki hf., matei.manolescu@fossar.is, s: 522 4000. Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki hf. arnar.saemundsson@fossar.is Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, geg@hagar.is
|