• Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) og Orkuveita Reykjavíkur hafa undirritað 10 ára lánasamning að fjárhæð 4.625 milljónir króna (32 milljónir evra) til fjármögnunar framkvæmda hjá ON Power við Hellisheiðarvirkjun á árunum 2025–2027. • Verkefnið felur í sér aukna varmaframleiðslu til húshitunar, borun nýrrar vinnsluholu sem og byggingu nýs viðhalds- og geymsluhúsnæðis. • Heildarkostnaður verkefnisins nemur 6.338 milljónum króna.
- Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) og Orkuveita Reykjavíkur hafa undirritað 10 ára lánasamning að fjárhæð 4.625 milljónir króna (32 milljónir evra) til fjármögnunar framkvæmda hjá ON Power við Hellisheiðarvirkjun á árunum 2025–2027.
- Verkefnið felur í sér aukna varmaframleiðslu til húshitunar, borun nýrrar vinnsluholu sem og byggingu nýs viðhalds- og geymsluhúsnæðis.
- Heildarkostnaður verkefnisins nemur 6.338 milljónum króna.
Mikilvægt í að mæta fólskfjölgun
Íbúum Reykjavíkur hefur fjölgað jafnt og þétt síðasta áratug, og gert er ráð fyrir að fjöldinn muni halda áfram að aukast næsta áratuginn. Fyrirhugaðar fjárfestingar munu auka öryggi framboðs á heitu vatni í kjölfar aukinnar eftirspurnar.
Varmaframleiðslugeta virkjunarinnar mun aukast úr 220 MW í 345 MW. Gert er ráð fyrir að þessi aukna geta skili að jafnaði 50.000–100.000 MWh af endurnýjanlegum varma á álagstímum í upphafi, með aukinni nýtingu eftir því sem byggðin á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að stækka. Að auki er áætlað að nýja vinnsluholan skili 5 MW í raforku (MWe).
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur:
„Þessi fjárfesting er mikilvægt skref til að styrkja þol og getu jarðhitakerfa til að mæta vaxandi eftirspurn á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem þörf fyrir heitt vatn og raforku eykst ár frá ári er nauðsynlegt að fjárfesta í sjálfbærum og framtíðarþolnum innviðum. Með því að auka framleiðslugetu Hellisheiðarvirkjunar tryggjum við örugga, skilvirka og áreiðanlega orkuframleiðslu til samfélagsins og nýtum jafnframt verðmætar, hreinar jarðhitaauðlindir Íslands á ábyrgan hátt.“
André Küüsvek, stjórnarformaður og forstjóri NIB:
„Hámarksþörf fyrir heitt vatn í Reykjavík eykst árlega um 120 lítra á sekúndu. Það er okkur sönn ánægja að styðja við Orkuveitu Reykjavíkur, sem hefur verið viðskiptavinur NIB lengi, þar sem fyrirtækið heldur áfram að efla afhendingaröryggi með fjárfestingum í jarðhitainnviðum til að mæta vaxandi eftirspurn.”
Orkuveita Reykjavíkur er næststærsta orkufyrirtæki landsins og veitir raforku og heitu og köldu vatni til viðskiptavina sinna auk þess að reka fráveituþjónustu og ljósleiðaranet. Orkuveita Reykjavíkur er í eigu Reykjavíkurborgar (93.5 %), Akraneskaupstaðar (5.5 %) og Borgarbyggðar (1.0 %).
NIB er alþjóðleg fjármálastofnun Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar verkefni á Norðurlöndunum og Eystrasaltssvæðinu sem stuðla að aukinni framleiðni og koma umhverfinu til góða. Höfuðstöðvar bankans eru í Helsinki en auk þess hefur bankinn svæðismiðstöð í Riga. NIB er með hæsta mögulega lánshæfismatið AAA/Aaa, hjá S&P Global Ratings og Moody’s.