Icelandic
Birt: 2025-08-21 11:19:27 CEST
Reykjavíkurborg - Fjárhagsdagatal

Reykjavíkurborg: Útgáfuáætlun fyrir seinni hluta ársins 2025

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 21. ágúst 2025 útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta ársins 2025. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir að lántaka borgarsjóðs nemi allt að 16.500 m.kr. á árinu.

Lántakan verður framkvæmd með stækkun á virkum skuldabréfaflokkum borgarsjóðs, með útgáfu á nýjum skuldabréfaflokkum, ádrætti á erlent lán frá CEB eða með öðrum hætti sem álitinn er hagkvæmur út frá markaðsaðstæðum hverju sinni. Jafnframt kemur til álita að framkvæma skiptiútboð á árinu.

Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar á seinni hluta ársins eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum:

  • 24. september
  • 22. október
  • 19. nóvember
  • 17. desember

Útgáfuáætlun er lögð fram til að auka fyrirsjáanleika á markaði en Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að bregða út af þessari áætlun, fella niður útboð og/eða bæta við útboðsdögum. Útgáfuáætlunin nær frá september til desember 2025.

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi að lágmarki einum virkum degi fyrir útboð.

Nánari upplýsingar veitir:


Halldóra Káradóttir
sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is