English Icelandic
Birt: 2022-07-06 19:44:40 CEST
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 2.920 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 27 voru samtals 1.740 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,84%. Heildartilboð voru 1.840 m.kr. á bilinu 6,74% - 6,88%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Útgefið nafnverð í flokknum er 53.840 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 28 voru samtals 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,35%. Heildartilboð voru 1.080 m.kr. á bilinu 1,35% - 1,40%. Útgefið nafnverð í flokknum verður 37.200 m.kr. eftir útgáfuna.

Engin tilboð bárust í ISB CBF 27.

Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins ISB CBI 22 að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Hreint verð á flokknum var fyrirfram ákveðið sem 100,48. Bankinn kaupir til baka 100 m.kr. að nafnvirði í flokknum.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is