Icelandic
Birt: 2022-08-23 16:50:55 CEST
SÍL hs.
Árshlutaupplýsingar

Árshlutareikningur SÍL hs. 30.6.2022

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 14 þús. kr. á tímabilinu.
  • Eignir sjóðsins í lok júní 2022 námu 8.469 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er ályktun endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins, efnahagi hans 30. júní 2022 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2022, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar veita Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461 og Eiríkur Ársælsson í síma 444 7472.

Viðhengi



Arshlutareikningur SIL 30.06.2022.pdf