English Icelandic
Birt: 2021-10-21 10:15:00 CEST
Marel hf.
Reikningsskil

Marel: 3F 2021 Fjárfestakynning

Marel hf. birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2021 eftir lokun markaða þann 20. október 2021.

Meðfylgjandi má finna 3F 2021 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á rafrænum afkomufundi með markaðsaðilum í dag, fimmtudaginn 21. október 2021 kl. 8:30.

Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (PIN 58395655#)
  • NL: +31 107129162
  • UK: +44 33 3300 9267
  • US: +1 631 913 1422 (PIN 58395655#)

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.


Viðhengi



Marel Q3 2021 Investor Presentation.pdf