Alma íbúðafélag hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 12. september 2024Alma íbúðafélag hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 12. september 2024 Alma íbúðafélag hf. hefur lokið útboði á nýjum skuldabréfaflokki AL 210926 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins. Seld voru skuldabréf fyrir 2.100 m.kr. Skuldabréfaflokkurinn AL 210926 er óverðtryggður og ber fljótandi vexti tengdum 3 mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu 1,40% vaxtaálagi. Lokagjalddagi flokksins er 21.september 2026. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi. Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnunar á núverandi skuldum félagsins. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudaginn 20. september 2024 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Landsbankinn hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku skuldabréfanna til viðskipta. Nánari upplýsingar veitir: Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri, ingolfur@al.is
|