English Icelandic
Birt: 2022-10-11 18:01:31 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Þrjú tilboð að fjárhæð 700 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 6,47%-6,52%. Tilboðum að fjárhæð 500 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,47%. Heildarstærð flokksins verður 54.160 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fjögur tilboð að fjárhæð 620 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,46%-6,50%. Tilboðum að fjárhæð 520m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,46%. Heildarstærð flokksins verður 11.460 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 18. október 2022.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.