Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 fyrir samtals 2.900 m.kr.
Í flokkinn ARION CBI 28 bárust 16 tilboð að fjárhæð 3.140 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,32 – 4,36%. Tilboð að nafnvirði 2.900 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 4,35%. Heildarstærð flokksins verður 9.100 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. nóvember 2024.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.