English Icelandic
Birt: 2023-01-10 16:45:45 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Ellefu tilboð að fjárhæð 1.680 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 7,50%-7,57%. Tilboðum að fjárhæð 1.060 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7.54%. Heildarstærð flokksins verður 55,620 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sautján tilboð að fjárhæð 4.040 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,32%-7,41%. Tilboðum að fjárhæð 3.840 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7,39%. Heildarstærð flokksins verður 18.760 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 17. janúar 2023.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.