Landsbankinn hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfaÍ tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CBI 24 á fyrirframákveðna verðinu 99,776. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 1.080 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CBI 24. Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 26. ágúst 2024.
|