English Icelandic
Birt: 2024-08-20 14:30:37 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa

Í tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CBI 24 á fyrirframákveðna verðinu 99,776.

Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 1.080 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CBI 24.

Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 26. ágúst 2024.