English Icelandic
Birt: 2021-12-16 18:45:00 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Arion banki lýkur útgáfu á grænum skuldabréfum í íslenskum krónum

Arion banki lauk í dag útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki ARION 26 1222 GB fyrir samtals 3.640 m.kr. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu bankans í íslenskum krónum. Viðtökurnar voru góðar og voru bréfin seld í lokuðu útboði til breiðs hóps innlendra fjárfesta.

Skuldabréfin eru til 5 ára og bera fasta 4.70% óverðtryggða vexti og einni endurgreiðslu höfuðstóls á lokagjalddaga árið 2026. Skuldabréfin eru gefin út undir grænni fjármálaumgjörð bankans. Í umgjörðinni er með skýrum og gegnsæjum hætti gerð grein fyrir þeim skilyrðum sem lánveitingar bankans þurfa að uppfylla til að teljast grænar.
Frekari upplýsingar má nálgast hér: https://wwwv2.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefafjarfestar/graen-skuldabref/

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipti í Nasdaq Iceland þann 22. desember 2021.

Umsjónaraðili útboðsins var verðbréfamiðlun Arion banka.


Arion banki Arion banki lykur utgafu a grnum skuldabrefum i islenskum kronum.pdf