Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu. Fimm tilboð að fjárhæð 680 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 7,12%-7,18%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Sex tilboð að fjárhæð 2.080 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,97%-7,03%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7,03%. Heildarstærð flokksins verður 14.920 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Uppgjörsdagur er 20. desember 2022. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.
|