Icelandic
Birt: 2023-02-09 10:28:50 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVKN 35 1 og RVK 53 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 1.685 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 1.385 m.kr. að nafnvirði á bilinu 8,35%-8,48%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.180 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 8,40%. Útistandandi fyrir útboð voru 20.340 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 21.520 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 300 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,0%. Ákveðið var að taka öllum tilboðum, samtals að nafnvirði 300 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,0%. Útistandandi fyrir útboð voru 23.985 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 24.285 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 14. febrúar 2023.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272