Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 1.320 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,26%. Heildartilboð voru 2.420 m.kr. á bilinu 3,25% til 3,31%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 20.160 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. apríl 2026.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.