Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 fyrir samtals 3.300 m.kr.
Í flokkinn ARION CBI 28 bárust 17 tilboð að fjárhæð 4.000 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,18 – 4,24%. Tilboð að nafnvirði 3.300 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 4,22%. Heildarstærð flokksins verður 25.300 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. apríl 2025.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.