English Icelandic
Birt: 2024-09-04 19:10:00 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs almennra skuldabréfa í íslenskum krónum

Arion banki lauk í dag útboði á almenna skuldabréfaflokknum ARION 28 1215 fyrir samtals 760 m.kr.

Í flokkinn ARION 28 1215 bárust 12 tilboð að fjárhæð 3.020 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,04% – 5,50%. Tilboð að nafnvirði 760 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 5,10%. Heildarstærð flokksins verður 12.060 m.kr. eftir útgáfuna.

Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins ARION 24 1020 GB að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 100,00 gegn kaupum í útboðinu. Engin tilboð bárust.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. september 2024.

Útgáfan verður gefin út undir 3,0 milljarða evra Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu EMTN rammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.


Arion banki hf. Niurstaa utbos almennra skuldabrefa i islenskum kronum.pdf