Icelandic
Birt: 2021-12-14 20:56:04 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 50 - Lok endurkaupaáætlunar

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 25. október 2021 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. október 2021, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 25. október 2021. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 50. viku 2021 keypti Reitir fasteignafélag hf. 640.728 eigin hluti að kaupverði 55.595.654 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
13.12.202114:11250.00087,00021.750.0009.447.240
13.12.202115:03200.00086,50017.300.0009.647.240
14.12.202110:00190.72886,75016.545.6549.837.968
  640.728 55.595.6549.837.968

Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 25. október 2021, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 6.000.000 hluta og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 31. janúar 2022 nema öðru hvoru framangreindra marka yrði náð áður.

Félagið hefur nú keypt samtals 6.000.000 eigin hluti fyrir samtals 494.053.734 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð. Reitir eiga nú samtals sem nemur 1,26% af heildarhlutafé félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is