Reykjavíkurborg - kynningarfundur fyrir markaðsaðila vegna fjárhagsáætlunarReykjavíkurborg mun vegna framlagningar á frumvarpi að fjárhagsáætlun 2025 og fimm ára áætlunar 2025-2029 halda kynningarfund fyrir markaðsaðila í dag miðvikudaginn 6. nóvember kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn að Borgartúni 12 í skrifstofuhúsnæði Reykjavíkurborgar, 7. hæð í fundarherbergi Kerhólar. Einar Þorsteinsson borgarstjóri mun ásamt Halldóru Káradóttur, sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem lögð var fram til fyrri umræðu í borgarstjórn þann 5. nóvember. Nánari upplýsingar veitir, Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs halldora.karadottir@reykjavik.is
|