Í 12. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 994.000 eigin hluti að kaupverði 4.294.080 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
17/03/2025 | 12:39:54 | 994.000 | 4.32 | 4.294.080 |
Samtals | 994.000 | 4.294.080 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024.
Nova Klúbburinn átti 129.097.708 hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 130.091.708 hluti, eða um 3,53% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 519.288.915 kr. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið, en Nova Klúbburinn átti enga eigin hluti fyrir framkvæmd hennar, og er því heildareign félagsins í samræmi við framangreint. Endurkaup máttu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og áætlunin vera í gildi þar til því hámarki var náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is