English Icelandic
Birt: 2023-06-07 14:03:11 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa

Í tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CB 23 á fyrirframákveðna verðinu 98,380.

Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 1.560 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CB 23.

Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 13. júní 2023.