English Icelandic
Birt: 2023-11-14 18:00:55 CET
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Kvika gefur út skuldabréf sænskum og norskum krónum

Kvika lauk í dag sölu á skuldabréfum að fjárhæð 500 milljónum sænskra króna og 250 milljónum norskra króna. Skuldabréf í sænskum krónum eru græn skuldbréf til þriggja ára og bera fljótandi vexti sem nema 400 punkta álagi á þriggja mánaða Stibor. Skuldabréfin eru fyrsta græna útgáfa íslensks banka í sænskum krónum.

Skuldabréf í norskum krónum eru viðbótarútgáfa í flokki sem gefinn var út í maí síðastliðnum, heildarstærð flokksins verður nú 800 milljónir norskra króna. Skuldabréfið er á gjalddaga í maí 2026 og var viðbótarútgáfan seld á verði sem jafngildir 380 punktum ofan á þriggja mánaða Nibor.

Skuldabréfin eru gefin út undir Euro Medium Term Note (EMTN) útgáfuramma bankans og stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 23. nóvember 2023.

Samhliða sölu á ofangreindum skuldabréfum bauðst Kvika til að kaupa til baka skuldabréf útgefin af bankanum í sænskum krónum með gjalddaga 31. janúar 2024.

Umsjónaraðilar viðskiptanna voru Nordea og Swedbank.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu  fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200.